Haraldur Benediktsson bæjarstjóri

Hægt að skapa tugi nýrra starfa í ferðaþjónustu

Um 3% íbúa á Akranesi hafa atvinnu af ferðaþjónustu en það hlutfall er að meðaltali 8-10% á landsvísu. Ferðaþjónusta á Íslandi er orðin stærri en stóriðja og sjávarútvegur og því eftir miklu að slægjast fyrir sveitarfélagið. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi segir ljóst að þarna sé tækifæri til að skapa tugi nýrra starfa en á vegum bæjaryfirvalda er nú unnið að mótun nýrrar stefnu í ferðaþjónustu. Tvö hótel eru í umræðunni, en mislangt á veg komin. „Það eru annarsvegar uppi áform um að breyta gamla Landsbankahúsinu í hótel,“ segir Haraldur. „Einnig er verið að ræða hugmynd um byggingu hótels niðri við höfn, en það mál er bara á hugmyndastigi. Þá er lenging á hafnarkantinum að verða tilbúin og þá geta skemmtiferðaskip lagst að bryggju.“