
Harmonikkutónleikar á Akranesi
Kalman - tónlistarfélag Akraness stendur fyrir tónleikum í Akraneskirkju nk. fimmtudagskvöld, 26. febrúar kl. 20. Þar kemur fram harmónikkuleikarinn Flemming Viðar Valmundsson á einleikstónleikum þar sem frásagnarmáttur klassísku harmóníkunnar verður í fararbroddi.