Fréttir

true

Vilji til að færa starfsemi ráðhúss undir eitt þak

Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 12. febrúar sl. voru húsnæðismál bæjarskrifstofu til umræðu. Á fundinn mættu sviðsstjórar til að fara yfir stöðuna í húsnæðismálum starfsfólks bæjarskrifstofu. Í bókun, sem samþykkt var samhljóða, kemur fram að bæjarráð er meðvitað um að núverandi staðsetning bæjarskristofu er eingöngu til bráðabirgða og að finna þurfi varanlega lausn. Starfsemin fer nú…Lesa meira

true

Davíð skipaður í raflínunefnd

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá 12. febrúar þar sem óskað var eftir tilnefningu fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra 14. nóvember sl. um að verða við beiðni Landsnets um skipun nefndarinnar. Byggðarráð samþykkti að tilnefna Davíð Sigurðsson sem fulltrúa sveitarfélagsins…Lesa meira

true

Farið yfir starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar

Á fund byggðarráðs Borgarbyggðar í gær kom Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri og fór yfir starfsemina á liðnu ári. Þá var umsögn slökkviliðsstjóra um úttektarskýrslu HMS lögð fram og farið yfir horfur á þessu ári. Samtals voru útköll slökkviliðsins 42 á síðasta ári. Haldnar voru 32 æfingar þar sem tekið var fyrir allt sem varðar brunavarnir,…Lesa meira

true

Konudagurinn er á sunnudaginn

Fagna skyldi Góu svipað og Þorra og dagurinn helgaður húsfreyjunni Konudagurinn er næstkomandi sunnudag og það er jafnframt fyrsti dagur Góu. Góa er næstseinasti mánuður vetrarins samkvæmt hinu forníslenska tímatali og nafnið sést í elstu handritum eða frá því um 1200. Óvíst er hvað það merkir upphaflega en orðsifjafræðingar hallast helst að því að það…Lesa meira

true

Vesturland situr eftir í fjárveitingum til stofnvega

Í umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, vegna Samgönguáætlunar, eru býsna harðorðar athugasemdir gerðar vegna áætlaðra framlaga til stofnvega á landinu. „Stjórn SSV gerir alvarlegar athugasemdir við fjárveitingar til nýframkvæmda við stofnvegi á Vesturlandi. Enn og aftur eru fjárveitingar til Vesturlands mun lægri en til annarra landshluta utan höfuðborgarsvæðisins þrátt…Lesa meira

true

Stuttar göngur með skömmum fyrirvara er nýjung hjá Ferðafélaginu

Í göngudagskrá Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs fyrir árið 2026 var tilkynnt um þá nýjung að auglýsa stuttar mánaðarlegar gönguferðir með skömmum fyrirvara seinni hluta vetrar, þegar veðurspá er hagstæð, undir heitinu „Gengið á gott veður.“ Fyrsta gönguferðin af þessu tagi var farin síðastliðinn laugardag og var upphafs staður hennar á Hraunhúseyrum, skammt vestan afleggjara að Gilsbakka í…Lesa meira

true

Fjórir voru sæmdir gullmerki KFÍA

Síðari hluti aðalfundar Knattspyrnufélags ÍA var haldinn í gærkvöldi. „Árið 2025 einkenndist áfram af markvissri uppbyggingu á innra starfi félagsins. Rekstur Knattspyrnufélags ÍA er sterkur og fjárhagsstaðan heilbrigð. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð og nam 54 milljónum króna. Í lok árs 2025 hefur félagið byggt upp sterka lausa- og eiginfjárstöðu sem gerir félaginu kleift að halda…Lesa meira

true

Styrkir á Vesturland úr Íþróttasjóði

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samþykkt tillögu um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026. Úthlutað er til 76 verkefna fyrir alls 32 milljónir króna. Fimm félög á Vesturlandi hljóta alls sjö styrki að þessu sinni. Þau eru: Keilufélag Akraness, 400.000 krónur til viðhalds og endurnýjunar vélbúnaðar. Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar, 400.000 krónur, til kaupa á grindahlaupsgrindum. Skotfélagið…Lesa meira

true

Ræddu leiðir til aukinnar ferðaþjónustu á Akranesi

Síðdegis í gær bauð Akraneskaupstaður til áhugaverðs fundar í sal Brekkubæjarskóla. Yfirskrift hans var að bjóða almenningi til þátttöku í að móta framtíð ferðaþjónustu í bæjarfélaginu. Á vegum bæjaryfirvalda er nú unnið að mótun nýrrar stefnu í ferðaþjónustu, en fram kom á fundinum að Akranes er talsvert á eftir öðrum sveitarfélögum landsins hvað varðar hlutfall…Lesa meira

true

Akraneskirkja á afmælisári

Í ár verða liðin 130 ár frá vígslu Akraneskirkju sem er friðlýst timburkirkja byggð á árunum 1895–1896. Vígslan fór fram 23. ágúst 1896 eins og sjá má í skrifum í Ísafold það ár. Var kirkjan vígð af hlutaðeigandi sóknarpresti og nýskipuðum prófasti, sr. Jóni Sveinssyni. Þess er getið að Hallgrímur Sveinsson biskup hafi ekki komist…Lesa meira