
Vilji til að færa starfsemi ráðhúss undir eitt þak
Á fundi bæjarráðs Akraneskaupstaðar 12. febrúar sl. voru húsnæðismál bæjarskrifstofu til umræðu. Á fundinn mættu sviðsstjórar til að fara yfir stöðuna í húsnæðismálum starfsfólks bæjarskrifstofu. Í bókun, sem samþykkt var samhljóða, kemur fram að bæjarráð er meðvitað um að núverandi staðsetning bæjarskristofu er eingöngu til bráðabirgða og að finna þurfi varanlega lausn. Starfsemin fer nú fram í tveimur byggingum við Dalbraut 1 og 4.