
Stuttar göngur með skömmum fyrirvara er nýjung hjá Ferðafélaginu
Í göngudagskrá Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs fyrir árið 2026 var tilkynnt um þá nýjung að auglýsa stuttar mánaðarlegar gönguferðir með skömmum fyrirvara seinni hluta vetrar, þegar veðurspá er hagstæð, undir heitinu „Gengið á gott veður.“ Fyrsta gönguferðin af þessu tagi var farin síðastliðinn laugardag og var upphafs staður hennar á Hraunhúseyrum, skammt vestan afleggjara að Gilsbakka í Hvítársíðu. Gengið var niður með Litla-Fljóti að Fljótsfossi og síðan niður gegnum Skógarhraun, sem er neðsti hluti Hallmundarhrauns og er alþakið birkiskógi. Í hrauninu eru upptök Lambeyrarkvíslar og var henni fylgt að ósi við Hvítá, áður en haldið var til baka upp með Hvítá, aftur upp gegnum hraunið og meðfram Strípstjörnum. Gangan tók um tvær klukkustundir og göngustjóri var Sigurður Magnússon frá Gilsbakka. Veðrið var eins og það gerist fallegast að vetri til, kyrrt og bjart og nokkurra stiga frost. Alls tóku tólf manns og einn ferfætlingur þátt í göngunni. Fleiri svipaðar gönguferðir verða væntanlega auglýstar á næstu vikum, með stuttum fyrirvara.