Svipmynd af stefnumótunarfundi um ferðamál. Ljósm. mm

Ræddu leiðir til aukinnar ferðaþjónustu á Akranesi

Síðdegis í gær bauð Akraneskaupstaður til áhugaverðs fundar í sal Brekkubæjarskóla. Yfirskrift hans var að bjóða almenningi til þátttöku í að móta framtíð ferðaþjónustu í bæjarfélaginu. Á vegum bæjaryfirvalda er nú unnið að mótun nýrrar stefnu í ferðaþjónustu, en fram kom á fundinum að Akranes er talsvert á eftir öðrum sveitarfélögum landsins hvað varðar hlutfall starfandi fólks í ferðaþjónustu. Um þrjú prósent íbúa hafa atvinnu af ferðaþjónustu en það hlutfall er að meðaltali 8-10% á landsvísu. Nú hyggjast ráðamenn blása glæðum í atvinnugreinina og boðuðu því til fundarins. Ágæt mæting var, eða um þrjátíu manns. Haraldur Benediktsson bæjarstjóri stýrði fundinum og kynnti frummælendur til leiks. Sagði hann í upphafi að margt jákvætt mætti segja um Akranes en að vægi ferðaþjónustu væri þó lítið. Að loknum erindum var gestum síðan skipað niður á borð þar sem rædd voru fimm meginþemu. Niðurstöður vinnuhópa verða svo nýttar til áframhaldandi stefnumótunar.