
Akraneskirkja á afmælisári
Í ár verða liðin 130 ár frá vígslu Akraneskirkju sem er friðlýst timburkirkja byggð á árunum 1895–1896. Vígslan fór fram 23. ágúst 1896 eins og sjá má í skrifum í Ísafold það ár. Var kirkjan vígð af hlutaðeigandi sóknarpresti og nýskipuðum prófasti, sr. Jóni Sveinssyni. Þess er getið að Hallgrímur Sveinsson biskup hafi ekki komist á Skagann þennan dag því veður var hið versta, feikna útsynningur og hvassviðri af suðvestri. Viðhöfn var því minni en vænta mátti og var aðeins einn annar af héraðsprestunum viðstaddur, séra Arnór Þorláksson á Hesti í Andakíl. Söngnum stýrði organistinn Ármann Þórðarson með „allvel æfðum söngflokk“ og voru um 450 manns viðstaddir. Tveggja kaupmannshjóna er sérstaklega getið sem gáfu kirkjunni góðar gjafir. Það voru Böðvar J. Þorvaldsson og Thor Jensen; „ásamt þeirra heiðruðu konum.“ Þær munu hafa verið Helga Guðbrandsdóttir og Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir.