Davíð skipaður í raflínunefnd

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í gær var lagt fram erindi félags- og húsnæðismálaráðuneytisins frá 12. febrúar þar sem óskað var eftir tilnefningu fulltrúa Borgarbyggðar í raflínunefnd vegna Holtavörðuheiðarlínu 1, sbr. ákvörðun félags- og húsnæðismálaráðherra 14. nóvember sl. um að verða við beiðni Landsnets um skipun nefndarinnar. Byggðarráð samþykkti að tilnefna Davíð Sigurðsson sem fulltrúa sveitarfélagsins í raflínunefndina.