
Af vettvangi bruna á síðasta ári.
Farið yfir starfsemi Slökkviliðs Borgarbyggðar
Á fund byggðarráðs Borgarbyggðar í gær kom Heiðar Örn Jónsson slökkviliðsstjóri og fór yfir starfsemina á liðnu ári. Þá var umsögn slökkviliðsstjóra um úttektarskýrslu HMS lögð fram og farið yfir horfur á þessu ári. Samtals voru útköll slökkviliðsins 42 á síðasta ári. Haldnar voru 32 æfingar þar sem tekið var fyrir allt sem varðar brunavarnir, slökkvistarf og björgun fólks úr bílflökum og brennandi húsum. Þá sinnti slökkviliðið fjölda skoðana og veitti leyfi og umsagnir, samtals komu 227 slökkvitæki til skoðunar og eldvarnareftirliti var sinnt. Markmið slökkviliðsins er að leggja ríkari áherslu á eldvarnareftirlit á árinu 2026.