Fréttir

true

Vesturland situr eftir í fjárveitingum til stofnvega

Í umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, vegna Samgönguáætlunar, eru býsna harðorðar athugasemdir gerðar vegna áætlaðra framlaga til stofnvega á landinu. „Stjórn SSV gerir alvarlegar athugasemdir við fjárveitingar til nýframkvæmda við stofnvegi á Vesturlandi. Enn og aftur eru fjárveitingar til Vesturlands mun lægri en til annarra landshluta utan höfuðborgarsvæðisins þrátt…Lesa meira

true

Stuttar göngur með skömmum fyrirvara er nýjung hjá Ferðafélaginu

Í göngudagskrá Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs fyrir árið 2026 var tilkynnt um þá nýjung að auglýsa stuttar mánaðarlegar gönguferðir með skömmum fyrirvara seinni hluta vetrar, þegar veðurspá er hagstæð, undir heitinu „Gengið á gott veður.“ Fyrsta gönguferðin af þessu tagi var farin síðastliðinn laugardag og var upphafs staður hennar á Hraunhúseyrum, skammt vestan afleggjara að Gilsbakka í…Lesa meira

true

Fjórir voru sæmdir gullmerki KFÍA

Síðari hluti aðalfundar Knattspyrnufélags ÍA var haldinn í gærkvöldi. „Árið 2025 einkenndist áfram af markvissri uppbyggingu á innra starfi félagsins. Rekstur Knattspyrnufélags ÍA er sterkur og fjárhagsstaðan heilbrigð. Rekstrarniðurstaða ársins var jákvæð og nam 54 milljónum króna. Í lok árs 2025 hefur félagið byggt upp sterka lausa- og eiginfjárstöðu sem gerir félaginu kleift að halda…Lesa meira

true

Styrkir á Vesturland úr Íþróttasjóði

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur samþykkt tillögu um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026. Úthlutað er til 76 verkefna fyrir alls 32 milljónir króna. Fimm félög á Vesturlandi hljóta alls sjö styrki að þessu sinni. Þau eru: Keilufélag Akraness, 400.000 krónur til viðhalds og endurnýjunar vélbúnaðar. Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar, 400.000 krónur, til kaupa á grindahlaupsgrindum. Skotfélagið…Lesa meira

true

Ræddu leiðir til aukinnar ferðaþjónustu á Akranesi

Síðdegis í gær bauð Akraneskaupstaður til áhugaverðs fundar í sal Brekkubæjarskóla. Yfirskrift hans var að bjóða almenningi til þátttöku í að móta framtíð ferðaþjónustu í bæjarfélaginu. Á vegum bæjaryfirvalda er nú unnið að mótun nýrrar stefnu í ferðaþjónustu, en fram kom á fundinum að Akranes er talsvert á eftir öðrum sveitarfélögum landsins hvað varðar hlutfall…Lesa meira

true

Akraneskirkja á afmælisári

Í ár verða liðin 130 ár frá vígslu Akraneskirkju sem er friðlýst timburkirkja byggð á árunum 1895–1896. Vígslan fór fram 23. ágúst 1896 eins og sjá má í skrifum í Ísafold það ár. Var kirkjan vígð af hlutaðeigandi sóknarpresti og nýskipuðum prófasti, sr. Jóni Sveinssyni. Þess er getið að Hallgrímur Sveinsson biskup hafi ekki komist…Lesa meira

true

Af starfi Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum

Aðalfundur félag aldraðra í Borgarfjarðardölum var haldinn í Brún miðvikdaginn 28. janúar og var þokkalega sóttur. Alls eru félagar 108 og hefur fjöldinn verið svipaður í nokkur ár. Í upphafi fundar minntist formaður þeirra er látist höfðu á árinu; þeirra Önnu Sigríðar Þorgrímsdóttur, Eyjólfs Sigurjónssonar, Steinunnar Eiríksdóttur og Diðriks Vilhjálmssonar. Risu fundarmenn úr sætum og…Lesa meira

true

Fékk sér rennibekk til að hafa eitthvað til að dunda við

Aðalsteinn Ólafsson sjómanni á Hellissandi er margt til lista lagt. Hann framleiðir nú tréhandverk, fór að stunda þá iðju eftir vinnuslys sem hann lenti í við að skera beitu. Þá lenti hann í beituskurðarvél og missti framan af fjórum fingrum á annarri hendi og var lengi frá vinnu af þeim sökum. „Þegar ég komst aftur…Lesa meira

true

Tveir styrkir til byggðaverkefna í Dölum og Snæfellsbæ

Innviðaráðuneytið hefur úthlutað styrkjum að upphæð 170 milljónum kr. til fjórtán verkefna um landið með að markmiði að efla viðkvæmar byggðir. Alls bárust 28 umsóknir fyrir um 756 milljónir króna. Þetta er hæsta úthlutun úr þessari aðgerð á tímabili gildandi byggðaáætlunar. „Markmiðið með aðgerðinni er að tengja sóknaráætlanir landshluta við byggðaáætlun og færa heimafólki aukna…Lesa meira

true

Öskudagur til uppgripa

Þau voru hraustleg og útitekin börnin sem komu við á ritstjórnarskrifstofu Skessuhorns í dag. Sungu og fengu nammi að launum og nýjasta tölublaðið glóðvolgt úr prentsmiðjunni. Öskudagurinn er jafnan drjúgur aðfangadagur hjá duglegum krökkum. Þau synja lagstúf og fá verðlaun, en halda síðan áköf út í austan vindinn og á næsta vinnustað. Takk fyrir komuna…Lesa meira