Fréttir

true

Skagamenn sýndu klærnar en dugði þó ekki til

Íslandsmeistarar Vals í körfu tóku í gær á móti ÍA í sautjándu umferð Bónusdeildar karla. Fyrirfram var búist við öruggum sigri heimamanna, þar sem Skagamenn hafa átt undir högg að sækja og sitja á botni deildarinnar. Leikurinn reyndist hins vegar hin mesta skemmtun, sérstaklega í fyrri hálfleik. Að lokum sýndi Valur hins vegar hvers vegna…Lesa meira

true

Fjárveiting skert til barnaverndarmála

„Það eru vonbrigði að framlag ríkisins á árinu 2025 stefnir í að verða mun lægra en ráð var fyrir gert vegna verkefna tengdum barnavernd og því stefnir í að Dalabyggð þurfi að ganga á fyrirliggjandi lánsheimild í fjárhagsáætlun ársins 2026.“ Þetta kom fram í skýrslu Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra Dalabyggðar á fundi sveitarstjórnar í gær. Tekur…Lesa meira

true

Silfurmerki til sjálboðaliða innan sundhreyfingarinnar

Sundsamband Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sambandsins í gær í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum. SSÍ fagnaði með samstarfsaðilum sundhreyfingarinnar í gegnum árin og var margt um manninn og mikil gleði við völd. Sambandið hefur í 75 ár unnið að uppbyggingu sundíþróttarinnar á Íslandi og var afmælið því kjörið tækifæri til að hittast, rifja upp…Lesa meira

true

Framhaldsskólahermir í FSN

Þriðjudaginn 10. febrúar var svokallaður Framhaldsskólahermir haldinn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Þá var nemendum í 10. bekk á Snæfellsnesi boðið í skólann þar sem þeir gátu kynnt sér námsleiðir og starfsemi skólans. Einnig var Nemendafélag FSN með kynningu á starfsemi félagsins. Nemendur vörðu deginum í FSN og sóttu tíma og hittu kennara og nemendur skólans. Þeir…Lesa meira

true

Setja vind- og veðurviðmið

Til að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða sinna á Akranesi, Grundartanga og í Reykjavík hafa Faxaflóhafnir sett takmarkanir á umferð skipa vegna veður- og vindskilyrða. Þetta kemur fram á heimasíðu Faxaflóahafna. Takmarkanir þessar eru þær fyrstu sem gefnar eru út opinberlega af höfn á Íslandi og byggjast á ítarlegri greiningu…Lesa meira

true

Tuttugu ára afmæli í vændum

Í ár fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli, sveitarfélagið varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa sem oft voru kallaðir; „hrepparnir sunnan Skarðsheiðar.“ Þetta voru Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur. Stjórnsýsluheitið Hvalfjarðarsveit var ákveðið á fyrsta fundi sveitarstjórnar á sínum tíma, enda hafði það fengið mest fylgi kjósenda í skoðaðankönnun sem haldin…Lesa meira

true

Reglugerð um strandveiðar slakar á kröfu um 100% eignarhald

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Tekur hún þegar gildi og leysir af hólmi reglugerð nr. 460/2024. Markmið nýrrar reglugerðar er sagt vera að skýra framkvæmd strandveiða og afmarka nánar skilyrði fyrir útgáfu og nýtingu leyfa innan ramma laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Drög að reglugerðinni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda…Lesa meira

true

Mildi að lenti ekki í ánni

Um miðjan dag varð óhapp við brúarsporðinn á gömlu Hvítárbrúnni við Ferjukot í Borgarfirði. Mikil hálka er á Hvítárvallavegi. Ökumaður jeppa var að koma frá Hvanneyri en skautaði framhjá brúarendanum, niður af háu barðinu og endaði um einum metra frá árbakkanum. Ökumann sakaði ekki, en var að vonum skelfdur á eftir. Þakkaði að hafa einungis…Lesa meira

true

Einungis tíundi hver ökumaður virti hámarkshraðann

Lögreglan á Vesturlandi greindi frá því í færslu á Facebook síðu sinni að 46 ökumenn hafi ekið langt yfir hámarkshraða þriðjudaginn 10. febrúar á vinnusvæði Vegagerðarinnar við Bjarnadalsá í Norðurárdal, þar sem unnið er að lagfæringum á brúarhandriðum. Ökuhraðinn hafði verið tekinn niður úr 90 km/klst í 30 km/klst vegna vinnu við brúna. Lögreglan hraðamældi…Lesa meira

true

Ólsari góður í tippinu

Tippari, sem styður Víking Ólafsvík, vann í gær tæpar tvær milljónir króna fyrir að vera með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum. Tipparinn notaði kerfi S-0-10-128 sem gefur honum möguleika á að setja tvö tákn á tíu leiki og setja eitt merki á þrjá leiki. Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664…Lesa meira