Stjórnsýsluhúsið í Búðardal.

Fjárveiting skert til barnaverndarmála

„Það eru vonbrigði að framlag ríkisins á árinu 2025 stefnir í að verða mun lægra en ráð var fyrir gert vegna verkefna tengdum barnavernd og því stefnir í að Dalabyggð þurfi að ganga á fyrirliggjandi lánsheimild í fjárhagsáætlun ársins 2026.“ Þetta kom fram í skýrslu Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra Dalabyggðar á fundi sveitarstjórnar í gær. Tekur hann fram að ríkið hafi á sínum tíma lýst því yfir að það tæki þennan tiltekna málaflokk yfir frá og með 1. júní 2025. Nú sé því hins vegar borið við að verið hefði um tiltekna fjárhæð að ræða og að málaflokkurinn hafi verið það kostnaðarsamur í heildina að hverju sveitarfélagi verði greitt sem nemur rétt rúmlega 80% af þeim kostnaði sem það hefur þegar greitt. Einnig að greiðsluhlutdeild fyrir tímabilið janúar til maí 2025 verði engin en hún hefur verið til þessa u.þ.b. 20%.