Stoltir silfurmerkjahafar. Ljósm. Guðrún Guðbjarnadóttir

Silfurmerki til sjálboðaliða innan sundhreyfingarinnar

Sundsamband Íslands hélt upp á 75 ára afmæli sambandsins í gær í Þróttaraheimilinu í Laugardalnum. SSÍ fagnaði með samstarfsaðilum sundhreyfingarinnar í gegnum árin og var margt um manninn og mikil gleði við völd. Sambandið hefur í 75 ár unnið að uppbyggingu sundíþróttarinnar á Íslandi og var afmælið því kjörið tækifæri til að hittast, rifja upp sögur og líta fram á veginn. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá þar sem m.a. Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ og Björn Sigurðsson formaður SSÍ fluttu afmælisávarp.