Mildi að lenti ekki í ánni

Um miðjan dag varð óhapp við brúarsporðinn á gömlu Hvítárbrúnni við Ferjukot í Borgarfirði. Mikil hálka er á Hvítárvallavegi. Ökumaður jeppa var að koma frá Hvanneyri en skautaði framhjá brúarendanum, niður af háu barðinu og endaði um einum metra frá árbakkanum. Ökumann sakaði ekki, en var að vonum skelfdur á eftir. Þakkaði að hafa einungis verið á um 40 kílómetra hraða og því náð að stoppa bílinn. Veður er kalt og íshröngl á ánni þannig að ekki hefði þurft að spyrja að leikslokum ef bíllinn hefði farið út í. Tveir vegfarendur um Hvítárvallaveg sendu Skessuhorni meðfylgjandi myndir og er þeim þakkað fyrir.

Mildi að lenti ekki í ánni - Skessuhorn