Á þjóðhátíðardaginn 2009 var nýtt stjórnsýsluhús tekið í notkun í Melahverfinu. Á myndinni eru Hallfreður Vilhjálmsson þáverandi oddviti, Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri og Stefán Ármannsson formaður byggingarnefndar hússins að skiptast á lyklum. Ljósm. úr safni/ah

Tuttugu ára afmæli í vændum

Í ár fagnar Hvalfjarðarsveit 20 ára afmæli, sveitarfélagið varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa sem oft voru kallaðir; „hrepparnir sunnan Skarðsheiðar.“ Þetta voru Hvalfjarðarstrandarhreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur. Stjórnsýsluheitið Hvalfjarðarsveit var ákveðið á fyrsta fundi sveitarstjórnar á sínum tíma, enda hafði það fengið mest fylgi kjósenda í skoðaðankönnun sem haldin var samhliða sameiningarkosningunum þetta vor. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur þegar hafið undirbúning að afmælishátíð í sveitarfélaginu og hefur vísað nánara skipulagi til Menningar- og markaðsnefndar.