
Strandveiðiafli kominn í land. Ljósm. úr safni/mm
Reglugerð um strandveiðar slakar á kröfu um 100% eignarhald
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Tekur hún þegar gildi og leysir af hólmi reglugerð nr. 460/2024. Markmið nýrrar reglugerðar er sagt vera að skýra framkvæmd strandveiða og afmarka nánar skilyrði fyrir útgáfu og nýtingu leyfa innan ramma laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Drög að reglugerðinni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í janúar og bárust 79 umsagnir. Í umsögnum komu fram margvíslegar ábendingar, einkum sem vörðuðu skilyrði um eignarhald og kröfur til þátttöku eigenda í veiðum. Brugðist var við fjölmörgum athugasemdum og gerðar breytingar til að koma til móts við ólík sjónarmið,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.