Norwegan Prima á Viðeyjarsundi. Ljósm. útgerð skipsins

Setja vind- og veðurviðmið

Til að tryggja örugga umferð skipa og starfsemi innan hafna og hafnarsvæða sinna á Akranesi, Grundartanga og í Reykjavík hafa Faxaflóhafnir sett takmarkanir á umferð skipa vegna veður- og vindskilyrða. Þetta kemur fram á heimasíðu Faxaflóahafna. Takmarkanir þessar eru þær fyrstu sem gefnar eru út opinberlega af höfn á Íslandi og byggjast á ítarlegri greiningu á vindgögnum, hermirannsóknum auk þess sem stuðst var við þekkingu og reynslu hafnsögumanna á viðkomandi hafnarsvæðum. Er þetta gert í kjölfar alvarlegs atviks á Viðeyjarsundi í maí 2023, þegar skemmtiferðaskipið Norwegian Prima var nær strandað í suðvestan hvassviðri. Markmiðið er að auka öryggi skipa og fækka alvarlegum atvikum vegna krefjandi aðstæðna.