Styrmir Jónasson á hér skot að körfunni. Ljósm. jho

Skagamenn sýndu klærnar en dugði þó ekki til

Íslandsmeistarar Vals í körfu tóku í gær á móti ÍA í sautjándu umferð Bónusdeildar karla. Fyrirfram var búist við öruggum sigri heimamanna, þar sem Skagamenn hafa átt undir högg að sækja og sitja á botni deildarinnar. Leikurinn reyndist hins vegar hin mesta skemmtun, sérstaklega í fyrri hálfleik. Að lokum sýndi Valur hins vegar hvers vegna þeir eru í toppbaráttunni og sigruðu með 17 stiga mun, 102–85.