Á brúnni yfir Bjarnardalsá er vinnuflokkur frá Vegagerðinni að störfum. Einungis tíundi hver ökumaður virðir hámarkshraða um framkvæmdasvæðið. Ljósm úr smiðju Mark Zuckerberg / eó

Einungis tíundi hver ökumaður virti hámarkshraðann

Lögreglan á Vesturlandi greindi frá því í færslu á Facebook síðu sinni að 46 ökumenn hafi ekið langt yfir hámarkshraða þriðjudaginn 10. febrúar á vinnusvæði Vegagerðarinnar við Bjarnadalsá í Norðurárdal, þar sem unnið er að lagfæringum á brúarhandriðum. Ökuhraðinn hafði verið tekinn niður úr 90 km/klst í 30 km/klst vegna vinnu við brúna. Lögreglan hraðamældi 295 bifreiðar og niðurstaða dagsins var sú að einungis 30 ökumenn virtu hámarkshraða. Alls óku 265 manns yfir þeim mörkum, 169 voru yfir sektarmörkum og 46 ökumenn óku á hraða yfir sviptingarmörkum. Sá sem hraðast ók í gegnum vinnusvæðið var á 116 km hraða.

Segir í færslu lögreglu að starfsmenn Vegagerðarinnar hafi sannarlega verið í hættu vegna hraðaksturs um vinnusvæðið og bendir lögreglan ökumönnum sem leið eiga um vinnusvæði Vegagerðarinnar að virða hraðatakmarkanir svo hætta skapist ekki fyrir þá sem eru þar við vinnu.

Á þriðja hundað ökumenn eiga nú von á mynd af sér í fjölskyldualbúmið eftir akstur um Norðurárdal á þriðjudaginn.