Fréttir

true

Sótt um að byggja myndarlegt fuglaskoðunarhús á Jónsnesi

Sótt hefur verið um leyfi til Sveitarfélagsins Stykkishólms til að byggja ríflega 200 fermetra hús á eyðibýlinu Jónsnesi í Helgafellssveit. Jörðin er 143 hektarar að stærð og var seld fyrir nokkru til fyrirtækisins Jónsness ehf sem hefur nú endurnýjað áður innsenda umsókn sína um að reisa þar byggingu sem er kölluð fuglaskoðunarhús. Um er að…Lesa meira

true

Mótmæla harðlega að veggjöld verði tekin upp að nýju

Akraneskaupstaður, ásamt sex öðrum umsagnaraðilum, hefur nú sent inn umsögn í samráðsgátt stjórnvalda vegna frumvarps um innviðafélag í samgönguframkvæmdum. Megin tilgangur félagsins er að byggja samgöngumannvirki, sem heimilað verður að innheimta veggjöld til að greiða niður fjárfestingu og rekstur viðkomandi mannvirkis. Einnig verður heimilt að byggja samgöngumannvirki sem að hluta til verði fjármagnar með framlögum…Lesa meira

true

Endurbyggja í sumar sex kílómetra kafla Snæfellsnesvegar

Borgarbyggð hefur fyrir sitt leyti samþykkt umsókn Vegagerðarinnar sem óskaði framkvæmdaleyfis vegna breikkunar, styrkingar og endurbyggingar Snæfellsnesvegar (54) milli Brúarhrauns og Hraunsmúla. Ástand þessa kafla vegarins hefur verið mjög bágborið undanfarin ár og þar hafa orðið alvarleg slys. Að jafnaði aka 2.450 bílar um veginn á sólarhring að sumri, en vetrarumferð er um þúsund bílar.…Lesa meira

true

Festa í sessi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán

Drög að frumvarpi um skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána hafa verið sett í samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána, sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota, verði gerð varanleg. Gert er ráð fyrir því að heimildin öðlist…Lesa meira

true

Frestur að renna út til að sækja um íbúðir í Bauluvík

Brák íbúðafélag hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var árið 2022 af 31 sveitarfélagi í þeim tilgangi að ná fram stærðarhagkvæmni sem næst almennt ekki með litlum húsnæðis-sjálfseignastofnunum með fáar íbúðir í rekstri. Brák íbúðafélag auglýsti fyrir nokkru eftir umsóknum um leigu á íbúðum að Bauluvík 2 í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með morgundagsins, miðvikudaginn…Lesa meira

true

112 dagurinn á þrjátíu ára afmæli Neyðarlínunnar

Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlega víða um land. Markmið dagsins er sem fyrr að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer. Þema 112 dagsins árið 2026 er 30…Lesa meira

true

Nýbygging á Kleppjárnsreykjum fram úr áætlun

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar í síðustu viku var lögð fram samantekt Eflu verkfræðistofu og drög að uppgjöri vegna nýbyggingar við Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum. Gögnin sýna að útlit er fyrir að heildarkostnaður verði 1.279 milljónir króna sem samsvarar um 20% hærri fjárhæð en upphaflegt tilboð hljóðaði upp á að teknu tilliti til verðbóta. Hluti fjárhæðarinnar…Lesa meira

true

Sækjast ekki eftir endurkjöri í sveitarstjórn í vor

Þrír af sjö aðalfulltrúum í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hafa tekið þá ákvörðun að gefa ekki kost á sér til endurkjörs við kosningarnar 16. maí í vor. Þetta eru þau Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti, Helgi Pétur Ottesen ritari sveitarstjórnar og Birkir Snær Guðlaugsson sveitarstjórnarfulltrúi. Þau tóku öll sæti í sveitarstjórn eftir kosningarnar fyrir fjórum árum, en þá…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum hefst í kvöld

Í kvöld klukkan 18 hefst keppni í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum í Faxaborg í Borgarnesi. Keppt verður í fjórgangi og eru 28 keppendur skráðir til leiks. „Upplagt er að skella sér í Borgarnes og fylgjast með af pöllunum, kostar ekkert inn – en Alendis streymir frá mótinu,“ segir í tilkynningu.Lesa meira

true

Margrét segir af sér sem rektor

Margrét Njarðvík Jónsdóttir, rektor Háskólans á Bifröst, tilkynnti í gærkvöldi afsögn sína úr embætti við skólann, en starfinu hefur hún gegnt í fimm ár. Greindi Margrét frá ákvörðun sinni í viðtalsþættinum Kastljósi í Ríkissjónvarpinu. „Fyrir þennan Kastljósþátt þá sendi ég bréf á stjórn skólans þar sem ég bað um lausn úr starfi,“ upplýsti Margrét og…Lesa meira