
Hluti vegarins sem til stendur að endurbyggja. Ljósm. mm
Endurbyggja í sumar sex kílómetra kafla Snæfellsnesvegar
Borgarbyggð hefur fyrir sitt leyti samþykkt umsókn Vegagerðarinnar sem óskaði framkvæmdaleyfis vegna breikkunar, styrkingar og endurbyggingar Snæfellsnesvegar (54) milli Brúarhrauns og Hraunsmúla. Ástand þessa kafla vegarins hefur verið mjög bágborið undanfarin ár og þar hafa orðið alvarleg slys. Að jafnaði aka 2.450 bílar um veginn á sólarhring að sumri, en vetrarumferð er um þúsund bílar.