
112 dagurinn á þrjátíu ára afmæli Neyðarlínunnar
Á morgun, miðvikudaginn 11. febrúar, verður 112 dagurinn haldinn hátíðlega víða um land. Markmið dagsins er sem fyrr að minna á þetta mikilvæga neyðarnúmer ásamt því að þakka neyðarvörðum og öðrum viðbragðsaðilum fyrir þeirra ómetanlegu störf. Dagsetningin 11.2. er táknræn og hjálpar landsmönnum að muna þetta lífsnauðsynlega númer. Þema 112 dagsins árið 2026 er 30 ára afmæli Neyðarlínunnar. Neyðarverðir taka á móti öllum erindum sem berast 1-1-2 og vinna úr þeim. Þau veita stuðning og leiðbeiningar og sjá til þess að málin fari í réttan farveg.Til þess að samstarf innhringjanda og neyðarvarðar gangi sem farsællegast er gagnlegt að vera viðbúinn að svara eftirfarandi spurningum þegar hringt er í 1-1-2: Hvar er atburðurinn, hver ert þú, hvað gerðist og hvenær gerðist atburðurinn?
Í öllum landshlutun verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni dagsins en hér á Vesturlandi verða viðburðir á eftirtöldum stöðum:
Akranes
Miðvikudaginn 11. febrúar opið hús á slökkvistöðinni Kalmansvöllum 2 kl. 16:00 – 18:00. Fulltrúar frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar, Lögreglunni á Vesturlandi, Neyðarlínu, sjúkraflutningum HVE á Akranesi, Björgunarfélagi Akraness og Slysavarnadeildinni Líf verða á staðnum. Hægt verður að skoða tæki og búnað. Boðið verður upp á kaffi, kleinur og djús fyrir börnin.
Borgarbyggð
Miðvikudaginn 11. febrúar verða Lögreglan á Vesturlandi, Sjúkraflutingar HVE, Slökkvilið Borgarbyggðar og Björgunarsveitin Brák með faratæki og búnað til sýnis við Hyrnutorg kl. 16:00.
Grundarfjörður
Miðvikudaginn 11. febrúar fer Slökkvilið Grundarfjarðar í heimsókn í grunnskólann auk þess sem sem viðbragðsaðilar fara í bláljósaakstur um bæinn.
Snæfellsbær
Laugardaginn 14. febrúar mun bílalest viðbragðsaðila keyra um bæinn. Farið verður frá Von í Rifi kl. 11:00 og keyrt um Hellissand, Rif og Ólafsvík. Opið hús verður í slökkvistöðinni Mettubúð frá kl. 12:00 og verður gestum boðið að skoða og kynna sér búnað viðbragðsaðila. Slysavarnadeildirnar Helga Bárðar og Sumargjöf bjóða upp á kaffi, svala og prins póló.
Stykkishólmur
Miðvikudaginn 11. febrúar verða viðbragðsaðilar með bláljósaakstur um bæinn kl. 16:00, í lokin verður stoppað við björgunarmiðstöðina.