
Festa í sessi ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á húsnæðislán
Drög að frumvarpi um skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána hafa verið sett í samráðsgátt stjórnvalda. Í frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána, sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota, verði gerð varanleg. Gert er ráð fyrir því að heimildin öðlist þegar gildi en að mögulegt verði að sækja um að nýta hana afturvirkt frá 1. janúar 2026.