
Brák íbúðafélag á 12 íbúðir í Víkurhverfi í Stykkishólmi. Þær eru í gula-, rauða- og bláa húsinu. Í græna húsinu eru einnig fjórar íbúðir en þær eru til sölu á almennum markaði. Ljósm. Helstu fréttir.
Frestur að renna út til að sækja um íbúðir í Bauluvík
Brák íbúðafélag hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun sem stofnuð var árið 2022 af 31 sveitarfélagi í þeim tilgangi að ná fram stærðarhagkvæmni sem næst almennt ekki með litlum húsnæðis-sjálfseignastofnunum með fáar íbúðir í rekstri. Brák íbúðafélag auglýsti fyrir nokkru eftir umsóknum um leigu á íbúðum að Bauluvík 2 í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með morgundagsins, miðvikudaginn 11. febrúar, en áætlaður afhendingartími íbúðanna er eftir 23. febrúar nk. Níu íbúðir eru auglýstar lausar til umsóknar en þegar er búið að ganga frá leigusamningum fyrir þrjár þeirra. Þetta kemur fram í rafrænu kynningarriti Stykkishólms, Helstu fréttum.