
Sótt um að byggja myndarlegt fuglaskoðunarhús á Jónsnesi
Sótt hefur verið um leyfi til Sveitarfélagsins Stykkishólms til að byggja ríflega 200 fermetra hús á eyðibýlinu Jónsnesi í Helgafellssveit. Jörðin er 143 hektarar að stærð og var seld fyrir nokkru til fyrirtækisins Jónsness ehf sem hefur nú endurnýjað áður innsenda umsókn sína um að reisa þar byggingu sem er kölluð fuglaskoðunarhús. Um er að ræða 204 fm byggingu, megin burðarvirkið er steyptar súlur, steypt botnplata og forsteyptar veggeiningar ásamt steyptu þakvirki. Með umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Guðmundi Jónssyni arkitekt sem er þekktur í faginu og starfar í Noregi. Vegna þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísaði byggingafulltrúi erindinu til skipulagsnefndar sveitarfélagsins og þar verður málið tekið á dagskrá á næsta fundi.