Fréttir

true

Smekkfyllti Akraneskirkju á minningartónleikum

Í gærkvöldi fóru fram minningartónleikar í Akraneskirkju. Um skipulagningu sá Ásta Marý Stefánsdóttir söngkona, en þennan dag voru liðin fimm ár frá því að frumburður hennar, hann Stefán Svan, lést tæplega fjögurra mánaða gamall. Í minningu um hann hélt hún tónleikana og kallaði til liðs við sig stóran hóp af tónlistarfólki og tæknimönnum, en allir…Lesa meira

true

Stefna á umhverfisgöngur í Stykkishólmi

Umhverfisganga verður farin í Stykkishólmi dagana 15. til 18. september. Í göngunni mun Jakob Björgvin S Jakobsson bæjarstjóri, ásamt öðrum fulltrúum sveitarfélagsins, ganga með íbúum um hverfi Stykkishólms og huga að nánasta umhverfi. „Tilgangur með umhverfisgöngunni er að efna til samtals um nánasta umhverfi, hvað megi betur fara í frágangi og umhirðu bæjarins, auk þess…Lesa meira

true

Fjölmargar framkvæmdir við hafnir Snæfellsbæjar

Miklar hafnarframkvæmdir hafa verið í sumar í höfnum Snæfellsbæjar. „Við höfum haft nægan tíma til framkvæmda síðan strandveiðum lauk og veður hefur leikið við okkur,“ segir Björn Arnalds hafnarstjóri í samtali við Skessuhorn. „Stærsta verkefnið er að fara í gang um næstu mánaðamót. Það hefst lenging Norðurgarðs bryggjunnar sem verður lengd um 100 metra. Við…Lesa meira

true

Fimm þúsund fermetrar ónýttir á Vesturlandi

Alls standa tæplega 60 þúsund fermetrar af húsnæði í eigu ríkisins auðir á landinu öllu. Þetta kemur fram í svari fjármála- og efnahagsráðherra á Alþingi við fyrirspurn Dags B Eggertssonar um viðhald og notkun á húsnæði í eigu ríkisins. Þingmaðurinn spurði ráðherra hversu mikið húsnæði í eigu ríkisins eða sem ríkið hefur á leigu stendur…Lesa meira

true

Lengri opnunartími Heiðarborgar

Velferðar- og fræðslunefnd Hvalfjarðarsveitar leggur til við sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar að lengri opnunartími Íþróttamiðstöðvarinnar Heiðarborgar verði framlengdur. Það var í janúar sem opnunartími var lengdur og eftir það varð opnunartíminn fyrir almenning á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 16-21, á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 14-21 og á laugardögum frá kl.10-15. Nefndin telur að reynslan af…Lesa meira

true

Framlag í fjárlögum til nýrrar jarðræktarmiðstöðvar á Hvanneyri

Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026 sem kynnt var í morgun er gert ráð fyrir 100 milljóna króna fjárveitingu til byggingar jarðræktarmiðstöðvar við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Rúm sjö ár eru síðan jarðræktarmiðstöð skólans var flutt frá Korpu í Reykjavik til Hvanneyrar. Miðstöðin hefur fram að þessu verið í svokallari gömlu BÚT á Hvanneyrartorfunni en nú…Lesa meira

true

Mikilvægt að horfa til kynja- og jafnréttissjónarmiða í vegagerð

Í fjárlagafrumvarpi því sem Daði Már Kristófersson efnahags- og fjármálaráðherra kynnti í morgun er talið mikilvægt að hafa kynja- og jafnréttissjónarmið í huga við frekari forgangsröðun og hönnun samgönguverkefna. Þar kemur fram að viðhald á vegum og þjónustu svo sem lagning bundins slitlags á malarvegum geti haft ólík áhrif á kynin. Karlar séu líklegri til…Lesa meira

true

Ríkinu heimilt að selja land

Í fjárlögum sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra kynnti í morgun er að finna ýmis konar heimildir til kaupa og sölu á eigum ríkisins. Má þar nefna heimild til þess að selja hlut ríkisins í Stillholti 16-18 á Akranesi og kaupa eða leigja annað hentugra húsnæði. Einnig má nefna heimild til að selja land við Hvanneyri…Lesa meira

true

Malbika í Búðardal á morgun ef veður leyfir

Vegna malbikunarframkvæmda þriðjudaginn 9. september verður Vestfjarðarvegur (60) um Búðardal þrengdur í eina akrein og umferðarstýring sett á vegna malbikunarframkvæmda. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir standi yfir frá kl. 08:30 til 21:00.  Verktaki í framkvæmdinni er Malbikunarstöðin Höfði.Lesa meira

true

Kostar nú jafn mikið að tala í Bretlandi

Ný reglugerð hefur verið undirrituð sem á að tryggja að farsímanotendur í viðskiptum við íslensk fjarskiptafyrirtæki munu greiða sömu gjöld fyrir farnetsþjónustu í Bretlandi og í öðrum ríkjum ESB og EES. „Markmiðið er að auka neytendavernd á fjarskiptamarkaði og færa gjaldtöku smásölugjalda fyrir reikiþjónustu íslenskra fjarskiptafyrirtækja í Bretlandi til samræmis við Evrópureglur,“ segir í tilkynningu…Lesa meira