
Álfsnes að dýpka í Rifi. Ljósmyndir: af
Fjölmargar framkvæmdir við hafnir Snæfellsbæjar
Miklar hafnarframkvæmdir hafa verið í sumar í höfnum Snæfellsbæjar. „Við höfum haft nægan tíma til framkvæmda síðan strandveiðum lauk og veður hefur leikið við okkur,“ segir Björn Arnalds hafnarstjóri í samtali við Skessuhorn. „Stærsta verkefnið er að fara í gang um næstu mánaðamót. Það hefst lenging Norðurgarðs bryggjunnar sem verður lengd um 100 metra. Við höfum gengið frá samningi við Hagtak og á þessari lengingu garðsins að verða lokið 1. maí á næsta ári. Samningurinn við Hagtak hljóðar upp á 424 milljónir króna en endanlegur kostnaður liggur ekki enn fyrir,“ segir Björn.