Fréttir

true

Þorsteinn tók þátt í HM í malarhjólreiðum

Rifsarinn Þorsteinn Bárðarson keppti nýverið á heimsmeistaramóti í malarhjólreiðum í flokki 45-49 ára. Hjólaðir voru 183 kílómetrar frá bænum Halle og endað í Leuven í Belgíu. Þorsteinn hafnaði í 60. sæti af 250 keppendum sem ræstir voru til keppni. Í ferðinni lenti hann í því að detta og brjóta brúsahaldarana á hjólinu, en þrátt fyrir…Lesa meira

true

Rökkurganga á Hvanneyri

Önnur bleika rökkurganga Krabbameinsfélags Borgarfjarðar og bleik messa var í Hvanneyrarkirkju í gærkvöldi. Alls voru um 40 einstaklingar sem tóku þátt í viðburðinum en Rósa Marínósdóttir hélt áhrifaríkt erindi í kirkjunni um hvernig það er að vera aðstandandi þess er greinist með krabbamein. Séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir sá um bleika messu í kirkjunni en næstkomandi…Lesa meira

true

Eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi seldar hópi fjárfesta

Skiptastjóri í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi hefur gengið frá samningi um sölu á öllum búnaði og lausafé þrotabúsins. Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaupin. Auk þess munu kaupendurnir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem Skaginn 3X hafði starfsemi sína í og hyggjast hefja þar aftur rekstur. Það er nýstofnað félag; KAPP…Lesa meira

true

Norðurál og Faxaflóahafnir endurnýja viðskiptasamning sinn

Norðurál og Faxaflóahafnir hafa endurnýjað samstarfssamning vegna starfsemi Norðuráls á hafnarsvæðinu á Grundartanga. Fyrirtækin hafa lengi átt í góðu samstarfi, eða allt frá stofnun Norðuráls árið 1998. Endurnýjaður samningur tekur mið af breyttum þörfum vegna nýrrar framleiðslulínu í álveri Norðuráls. Nýja framleiðslulínan mun auka verðmæti framleiðslunnar með því að færa virðisaukandi framleiðslu, sem hingað til…Lesa meira

true

Ný Björg komin til heimahafnar í Rifi

Sveitarfélögin þrjú á Snæfellsnesi leggja 30 milljónir króna til verkefnisins Í gær var stór dagur hjá björgunarsveitinni Lífsbjörgu í Snæfellsbæ þegar nýtt björgunarskip kom í fyrsta sinn til heimahafnar. Skipið hefur fengið nafnið Björg, eins og fyrirrennari þess, og verður með aðsetur í Rifi. Áður en skipinu var siglt til Rifs var tekinn hringur í…Lesa meira

true

Leggja til að engar loðnuveiðar verði stundaðar

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024/2025. Sú ráðgjöf er samhljóma fyrirliggjandi upphafsráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2023. Ráðgjöfin verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun næsta árs. Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq og veiðiskipinu Polar…Lesa meira

true

Segir túristasorp vera vandamál í Borgarnesi

Eigendur og rekstraraðilar þjónustu- og verslunarfyrirtækja við brúarsporðinn í Borgarnesi vekja máls á því að ekki er möguleiki fyrir ferðafólk að losna við rusl þegar það á leið um bæinn. Fyrir bragðið er mikil ásókn í að setja rusl í gáma á vegum fyrirtækjanna. Ef gámunum er læst er ruslið einfaldlega lagt við hlið þeirra…Lesa meira

true

Stjórnarslit og boðað til þingkosninga í lok nóvember

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra boðaði í dag til blaðamannafundar í Stjórnarráðinu við Lækjartorg og stendur fundurinn enn yfir. Þar upplýsti hann að hann hefur lagt fyrir forseta Íslands tillögu um þingrof. Líklegt er að boðað verði til þingkosninga í nóvember, þ.e. laugardaginn 30. nóvember. Lýkur nú sjö ára samstarfi núverandi stjórnarflokka í ríkisstjórn.Lesa meira

true

Bjarki Pétursson ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness

„Okkur er það mikil ánægja að tilkynna að Bjarki Pétursson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum. Tekur hann við af Gunnhildi Lind Hansdóttur sem frá því í vor gegndi framkvæmdastjórninni í hlutastarfi. Bjarki Pétursson er mörgum félagsmönnum GB og landsmönnum vel kunnur. Hann er uppalinn á Hamarsvelli og hefur…Lesa meira