KAPP Skaginn ehf tekur á leigu hluta húsanna sem Skaginn 3X var áður í. Ljósm. mm

Eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi seldar hópi fjárfesta

Skiptastjóri í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi hefur gengið frá samningi um sölu á öllum búnaði og lausafé þrotabúsins. Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaupin. Auk þess munu kaupendurnir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem Skaginn 3X hafði starfsemi sína í og hyggjast hefja þar aftur rekstur. Það er nýstofnað félag; KAPP Skaginn ehf., sem kaupir eignirnar en félagið er að meirihluta í eigu KAPP ehf., rótgróins tæknifyrirtækis sem sérhæfir sig í tækjabúnaði fyrir sjávarútveg, fiskeldi og annan iðnað. Aðrir hluthafar í KAPP Skaganum ehf. eru m.a. Eignarhaldsfélagið VGJ og TECTRU S/A, auk lykilstarfsmanna hins nýja félags og fleiri.

„Markmiðið er að hefja rekstur að nýju og byggja upp starfsemi KAPP Skagans á Akranesi,“ segir í tilkynningu frá Frey Friðrikssyni stjórnarformanni hins nýja félags. „Akranes getur orðið miðstöð þekkingar og þróunar félagsins,“ segir hann og fagnar því að það takist að tryggja áfram sérhæfð störf á sviði tækniþjónustu við sjávarútveg á Akranesi.

Af hálfu þrotabúsins komu Helgi Jóhannesson skiptastjóri og Íslandsbanki að gerð samkomulagsins. Freyr Friðriksson, forstjóri og stærsti hluthafi KAPP, kveðst bjartsýnn á framtíð félagsins. „Ekki aðeins er verið að tryggja störf á Akranesi heldur eru væntingar okkar að þarna verði rekin ábatasöm starfsemi sem til lengri tíma geti orðið miðstöð þekkingar og þróunar félagsins fyrir m.a. sjávarútveg hér á landi.“ Að sögn Freys hefði þessum áfanga ekki verið náð nema af því að margar hendur lögðust á eitt, ekki bara forsvarsmenn þrotabúsins og Íslandsbanka, heldur einnig Akraneskaupstaður, auk fjölda annarra aðila. Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en vonir standa til þess að unnt verði að hefja starfsemi að nýju á Akranesi 1. nóvember næstkomandi.

Ráðgjafar kaupenda við viðskiptin voru LEX lögmannstofa og OPUS lögmenn auk þess sem að Sævar Freyr Þráinsson fyrrverandi bæjarstjóri og forstjóri OR veitti aðilum ráðgjöf í sjálfboðavinnu.