
Stjórnarslit og boðað til þingkosninga í lok nóvember
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra boðaði í dag til blaðamannafundar í Stjórnarráðinu við Lækjartorg og stendur fundurinn enn yfir. Þar upplýsti hann að hann hefur lagt fyrir forseta Íslands tillögu um þingrof. Líklegt er að boðað verði til þingkosninga í nóvember, þ.e. laugardaginn 30. nóvember.