Rökkurganga á Hvanneyri. Ljósm. Krabbameinsfélag Borgarfjarðar.

Rökkurganga á Hvanneyri

Önnur bleika rökkurganga Krabbameinsfélags Borgarfjarðar og bleik messa var í Hvanneyrarkirkju í gærkvöldi. Alls voru um 40 einstaklingar sem tóku þátt í viðburðinum en Rósa Marínósdóttir hélt áhrifaríkt erindi í kirkjunni um hvernig það er að vera aðstandandi þess er greinist með krabbamein. Séra Heiðrún Helga Bjarnadóttir sá um bleika messu í kirkjunni en næstkomandi sunnudagskvöld, 20. október, verður haldin rökkurganga og bleik messa í Borgarneskirkju.

Rökkurganga á Hvanneyri - Skessuhorn