
Bjarki og Snæbjörn Óttarsson formaður GB handsala ráðninguna í starf framkvæmdastjóra.
Bjarki Pétursson ráðinn framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness
„Okkur er það mikil ánægja að tilkynna að Bjarki Pétursson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Golfklúbbs Borgarness,“ segir í tilkynningu frá klúbbnum. Tekur hann við af Gunnhildi Lind Hansdóttur sem frá því í vor gegndi framkvæmdastjórninni í hlutastarfi.