
Norðurál á Grundartanga. Ljósm. mm
Norðurál og Faxaflóahafnir endurnýja viðskiptasamning sinn
Norðurál og Faxaflóahafnir hafa endurnýjað samstarfssamning vegna starfsemi Norðuráls á hafnarsvæðinu á Grundartanga. Fyrirtækin hafa lengi átt í góðu samstarfi, eða allt frá stofnun Norðuráls árið 1998. Endurnýjaður samningur tekur mið af breyttum þörfum vegna nýrrar framleiðslulínu í álveri Norðuráls. Nýja framleiðslulínan mun auka verðmæti framleiðslunnar með því að færa virðisaukandi framleiðslu, sem hingað til hefur farið fram erlendis, til Íslands. Með því að nota íslenska orku verður kolefnisspor framleiðslunnar mun minna en ef hún færi fram erlendis.