Loðna

Leggja til að engar loðnuveiðar verði stundaðar

Hafrannsóknastofnun leggur til að engar loðnuveiðar verði leyfðar fiskveiðiárið 2024/2025. Sú ráðgjöf er samhljóma fyrirliggjandi upphafsráðgjöf sem byggði á mælingum á ungloðnu haustið 2023. Ráðgjöfin verður endurmetin þegar niðurstöður bergmálsmælinga á stærð veiðistofnsins liggja fyrir í byrjun næsta árs. Ráðgjöfin byggir á niðurstöðum bergmálsmælinga á loðnustofninum á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Tarajoq og veiðiskipinu Polar Ammassak á tímabilinu 21. ágúst til 1. október. Leiðangurinn er talinn hafa náð yfir útbreiðslusvæði stofnsins. Loðnan var nokkuð jafndreifð á svæðinu og mælingin hennar hafði fremur lágan breytistuðul,“ segir í tilkynningu frá Hafró.

Leggja til að engar loðnuveiðar verði stundaðar - Skessuhorn