Fréttir

true

Samþykktu deiliskipulag fyrir mælimastri á Grjóthálsi

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðdegis í dag var til umræðu og afgreiðslu tillaga skipulags- og byggingarnefndar sem lagt hafði til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á deiliskipulagi sem heimilar uppsetningu 98 metra mælimasturs á Grjóthálsi í landi Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Mastrið á að safna upplýsingum fyrir mögulegt vindorkuver á hálsinum. Málið hefur verið afar umdeilt…Lesa meira

true

Malbiksframkvæmdir á hringvegi í kvöld

Í kvöld frá klukkan 22 til 02 í nótt, miðvikudaginn 9. október, verður unnið við malbiksviðgerðir á hringvegi á milli Hvalfjarðarganga og Borgarness. Hámarkshraði verður lækkaður og umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðum eftir þörfum. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki…Lesa meira

true

Starfsfólk FVA í Lónsöræfum – Myndasyrpa

Undanfarin ár hefur Heilsueflingarteymi Fjölbrautaskóla Vesturlands skipulagt sumarferðir starfsfólks skólans á spennandi gönguslóðir. Vanalega höfum við farið í ágúst, rétt áður en skólastarfið hefst að nýju og hafa þessar ferðir reynst frábært hópefli. Við höfum ávallt sett stefnuna á hálendið þar sem við erum netlaus og helst símasambandslaus, það er bara eitthvað svo mikil fegurð…Lesa meira

true

Margir ökumenn að flýta sér

Í liðinni viku voru afskipti höfð af um 80 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar af mældust sex ökumenn yfir 130 km hraða á klst. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og nokkrir ökumenn voru kærðir vegna vankanta á hleðslu eða frágangi farms. Þriggja bíla árekstur varð…Lesa meira

true

Fyrsta deildarkeppnismót Píludeildar Skallagríms

Píludeild Skallagríms var stofnað í apríl á þessu ári en deildin hefur aðstöðu í Grillhúsinu í Borgarnesi. Opið er fyrir áhugasama öll þriðjudagskvöld að prófa sig áfram, fá handleiðslu og ná tökum á helstu undirstöðum íþróttarinnar. Einnig eru æfingar fyrir unglinga og fullorðna á föstudögum og laugardögum í vetur en hægt er að fylgjast með…Lesa meira

true

Leiðir til byggðafestu og eflingar nýsköpunar á sauðfjárræktarsvæðum

Leiðir til byggðafestu er verkefni sem snýr að eflingu nýsköpunar á sauðfjárræktarsvæðum á Íslandi. Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa sameiginlega að verkefninu. Það er unnið með styrk frá innviðaráðuneytinu til að efla byggð á þeim landssvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt. Þar er litið…Lesa meira

true

„Það er ábyrgðarhluti að vera forystumaður í stéttarfélagi“

Ítarlegt viðtal við Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness. Félagið fagnar nú 100 ára afmæli Verkalýðsfélag Akraness fagnar 100 ára afmæli sínu á næstunni en það var stofnað 14. október árið 1924. Í tilefni dagsins verður opið hús næsta föstudag, 11. október, milli klukkan 13 og 17 á skrifstofu félagsins á Þjóðbraut 1. Þar verður boðið…Lesa meira

true

Fyrsti snjórinn á sunnanverðu landinu

Í gærkvöldi snjóaði í fjöll um sunnan- og suðvestanvert landið. Fyrstu samgöngutruflanir haustsins gerðu vart við sig á Hellisheiði. Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út vegna fjölda bíla í vandræðum víða í Kömbunum. Talsverð hálka hafði myndast og snjór sem saman gerðu það að verkum að fjöldi bíla komust ekki leiðar sinnar og einhverjir…Lesa meira

true

Eyja- og Miklaholtshreppur gaf FSN afmælisgjöf

Fjölbrautaskóli Snæfellinga hélt upp á 20 ára afmæli sitt nú í haust eins og ítarlega hefur verið sagt frá í Skessuhorni. Í tilefni afmælisins gaf Eyja- og Miklaholtshreppur skemmtilega gjöf til skólans; borðtennisboð, spaða og kúlur. Mikil ánægja er meðal nemenda og starfsmanna að fá borðið, en það leysir af hólmi annað sem komið var…Lesa meira

true

Tóku þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ

Síðasta föstudag tóku nemendur og starfsmenn Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Hlaupið fór fram í sólríku og köldu veðri og gekk í alla staði mjög vel. Nemendur gátu valið um 1 km, 2,5 km, 5 km eða 10 km. Markmið hlaupsins er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig…Lesa meira