
Leiðir til byggðafestu og eflingar nýsköpunar á sauðfjárræktarsvæðum
Leiðir til byggðafestu er verkefni sem snýr að eflingu nýsköpunar á sauðfjárræktarsvæðum á Íslandi. Fjórðungssamband Vestfirðinga (FV), Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) standa sameiginlega að verkefninu. Það er unnið með styrk frá innviðaráðuneytinu til að efla byggð á þeim landssvæðum sem eiga mest undir sauðfjárrækt. Þar er litið til Dalabyggðar, Reykhólahrepps, Strandabyggðar, Kaldrananeshrepps, Árneshrepps og Húnaþings vestra.