Malbiksframkvæmdir á hringvegi í kvöld

Í kvöld frá klukkan 22 til 02 í nótt, miðvikudaginn 9. október, verður unnið við malbiksviðgerðir á hringvegi á milli Hvalfjarðarganga og Borgarness. Hámarkshraði verður lækkaður og umferð verður stýrt framhjá framkvæmdasvæðum eftir þörfum. „Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum,“ segir í tilkynningu frá Colas Ísland sem vinnur verkið.

Malbiksframkvæmdir á hringvegi í kvöld - Skessuhorn