Margir ökumenn að flýta sér

Í liðinni viku voru afskipti höfð af um 80 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Þar af mældust sex ökumenn yfir 130 km hraða á klst. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og nokkrir ökumenn voru kærðir vegna vankanta á hleðslu eða frágangi farms. Þriggja bíla árekstur varð í Hvalfjarðargöngum, án slysa á fólki, en einhverjar skemmdir urðu á bifreiðum. Bifreið var ekið á hús á Akranesi. Gerðist það þegar ökumaður steig óvart á inngjöf í stað bremsu. Ekki urðu teljandi slys á fólki. Tvö minni háttar umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu, bæði án slysa á fólki.

Margir ökumenn að flýta sér - Skessuhorn