Svipmynd af fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í dag þar sem meirihlutinn klofnaði í afgreiðslu sinni. Ljósm. mm

Samþykktu deiliskipulag fyrir mælimastri á Grjóthálsi

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðdegis í dag var til umræðu og afgreiðslu tillaga skipulags- og byggingarnefndar sem lagt hafði til við sveitarstjórn að samþykkja breytingu á deiliskipulagi sem heimilar uppsetningu 98 metra mælimasturs á Grjóthálsi í landi Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Mastrið á að safna upplýsingum fyrir mögulegt vindorkuver á hálsinum. Málið hefur verið afar umdeilt síðustu misseri og ár og hafa nánast allir íbúar í næsta nágrenni við framkvæmdasvæðið mótmælt með formlegum hætti öllum fyrirætlunum um vindorkuver og mælingar í aðdraganda þess. Nokkrir íbúar mættu á fund sveitarstjórnar í dag en viku af fundi þegar afgreiðslu málsins var lokið.

Samþykktu deiliskipulag fyrir mælimastri á Grjóthálsi - Skessuhorn