Fyrsti snjórinn á sunnanverðu landinu

Í gærkvöldi snjóaði í fjöll um sunnan- og suðvestanvert landið. Fyrstu samgöngutruflanir haustsins gerðu vart við sig á Hellisheiði. Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út vegna fjölda bíla í vandræðum víða í Kömbunum. Talsverð hálka hafði myndast og snjór sem saman gerðu það að verkum að fjöldi bíla komust ekki leiðar sinnar og einhverjir smávægilegir árekstrar urðu. Einhverjir höfðu lent utan vegar eins og sést á meðfylgjandi mynd frá Landsbjörgu. Björgunarsveitarfólk á fjórum björgunarbílum ferjaði bæði fólk og bíla niður af heiðinni, en í einhverjum tilfellum voru bílar skildir eftir þar sem þeir voru. Aðgerðum var að mestu lokið nú á 10. tímanum í gærkveldi.