
Starfsfólk og viðhengi á hringleið um Gjögur. Ljósm. gj
Starfsfólk FVA í Lónsöræfum – Myndasyrpa
Undanfarin ár hefur Heilsueflingarteymi Fjölbrautaskóla Vesturlands skipulagt sumarferðir starfsfólks skólans á spennandi gönguslóðir. Vanalega höfum við farið í ágúst, rétt áður en skólastarfið hefst að nýju og hafa þessar ferðir reynst frábært hópefli. Við höfum ávallt sett stefnuna á hálendið þar sem við erum netlaus og helst símasambandslaus, það er bara eitthvað svo mikil fegurð í einfaldleikanum. Höfum alltaf verið í skála en þar er spilað á gítar og sungið, spilað Kínaskák, mikið borðað og enn meira spjallað og hlegið. Í amstri nútímans er þetta skálalíf eins og að fara aftur til fortíðar í nokkra daga og er bara kærkomið tímaflakk.