Fréttir

true

Ný Björg komin til landsins

Upp úr hádegi í dag var Björg, nýtt björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, hífð frá borði Brúarfoss, skipi Eimskipafélagsins í Sundahöfn. Björg er fjórða skipið í nýsmíðaverkefni Landsbjargar og mun leysa af hólmi skip með sama nafni í rekstri Lífsbjargar í Rifi á Snæfellsnesi. Það skip var smíðað árið 1988 og er því orðið 36 ára gamalt.…Lesa meira

true

Alvarlegar athugasemdir koma fram í skýrslu um barnaverndarþjónustu

Athugun Gæða- og eftirlitsstofnunar (GEV) velferðarmála á gæðum barnaverndarþjónustu í sveitarfélaginu Borgarbyggð leiddi m.a. í ljós óskýra verkferla, skort á leiðbeiningum til starfsfólks og brot gegn málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga. Þetta kemur fram í skýrslu sem birt var á vef GEV í dag. GEV tók ákvörðun í mars 2023 um að hefja frumkvæðiseftirlit í formi athugunar á…Lesa meira

true

Gisting og fæði á 40 þúsund fyrir ríkisstarfsmenn

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Tekur breytingin gildi á morgun, 1. október. “Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess,” segir í tilkynningu. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á…Lesa meira

true

Símenntun á Vesturlandi velur sigurvegara í ljósmyndakeppni

Ljósmynd Michaelu Hrómadkóvu á Snæfellsnesi hefur verið valin sigurmynd í ljósmyndakeppni Símenntunar Vesturlands. Keppnin átti að snúast um fjölmenningu. Ljósmynd Michaelu (sjá hér að neðan) vakti sérstaka athygli dómnefndar en hún fangar á fallegan hátt mikilvægi mannlegra tengsla í nútímasamfélagi og dregur einnig fram þvermenningarleg samskipti. Myndin varpar ljósi á eitt af gildum Fjölmenningarskóla Vesturlands;…Lesa meira

true

Sumartónleikar Hallgrímskirkju haldnir í sjötta sinn í sumar

Sumartónleikar í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarðarsveit voru haldnir í sjötta sinn í sumar og í ár voru haldnir níu tónleikar sem fram fóru á sunnudögum. Meðal flytjenda voru Djasstríó Þórs Breiðfjörð, Kammerhópurinn Kvika sem skipaður er söngfólki úr heimabyggð, strengjakvartettinn Kordó, Guja Sandholt ásamt hollenskum tónlistarkonum, Blood Harmony sem skipuð er þremur norðlenskum systkinum,…Lesa meira

true

Kynningarfundur á Breið um opinber störf án staðsetningar

Næskomandi miðvikudag, 2. október kl. 17:00, mun Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi og stjórnarmaður í Byggðastofnun kynna nýjar tillögur innviðaráðuneytis og Byggðastofnunar um styrki fyrir óstaðbundin störf á landsbyggðinni. Fundurinn verður haldinn á Breið, nýsköpunarsetri. Kynnt verður að ákveðið hefur verið að veita styrkjum allt að 150 milljónum kr. af byggðaáætlun, til að fjölga óstaðbundnum…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Hafnarbraut í fullum gangi

Í vikunni sem leið hófst endurgerð á bílastæðum og gangstéttum við Hafnarbraut á Akranesi á móts við Breið þróunarfélag. Bílastæðin voru orðin illa farin og gangstéttarnar nánast hættulegar. Að sögn Lárusar Ársælssonar umhverfisstjóra hjá Akraneskaupstað er áætlað að verkinu ljúki í byrjun nóvember en það fari eftir veðri og aðstæðum. Þetta verk er hluti af…Lesa meira

true

Hægt að innleysa greiðslumark í nóvember

Innlausnarmarkaður fyrir greiðslumark sauðfjár verður haldinn í nóvember. Verðið er núvirt andvirði beingreiðslna næstu tveggja almanaksára, krónur 10.762 fyrir hvert ærgildi. Það greiðslumark sem er innleyst er jafnframt boðið til sölu á innlausnarverði. „Framleiðendur sem eiga 100 kindur eða fleiri og eru með ásetningshlutfallið 1,0 eða hærra skulu hafa forgang að öllu greiðslumarki sem er…Lesa meira

true

Litahlaup og samdans í GSNB

Síðastliðinn fimmtudag var sannarlega litríkur dagur í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Þá tóku nemendur og starfsfólk þátt í samdansi en að honum loknum var farið út í litahlaup. Var þetta gert í tilefni heilsuviku Snæfellsbæjar. Að sögn Hilmars Más Arasonar skólastjóra var þetta í fyrsta skipti sem litahlaup fer fram hjá þeim. „Það mátti sjá gleði og…Lesa meira

true

Hraðferð um ljóðalífið

Síðastliðið laugardagskvöld áttu margir leið á Söguloft Landnámssetursins í Borgarnesi. Tilefnið var ærið; ljóðalestur Arnars Jónssonar, eins ástsælasta leikara þjóðarinnar. Hann hóf mál sitt á því að segja frá áhrifum ljóða á líf sitt, enda hefur hann nýlega gefið úr plötu með ljóðum sem hafa snert við honum í gegnum tíðina og frásögnin í Landnámsetrinu…Lesa meira