Litahlaup og samdans í GSNB

Síðastliðinn fimmtudag var sannarlega litríkur dagur í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Þá tóku nemendur og starfsfólk þátt í samdansi en að honum loknum var farið út í litahlaup. Var þetta gert í tilefni heilsuviku Snæfellsbæjar. Að sögn Hilmars Más Arasonar skólastjóra var þetta í fyrsta skipti sem litahlaup fer fram hjá þeim. „Það mátti sjá gleði og ánægju í andliti nemenda og starfsfólks. Allir fóru á sínum hraða og þeir kappsömustu fóru 6-8 hringi. Hlaupinn var gamli skólahringurinn en það er Bæjartún, Kirkjutún og Engihlíð. Það var gaman sjá hversu margir komu og hvöttu krakkana áfram en okkur langar sérstaklega að þakka leikskólakrökkunum og íbúum dvalarheimilisins fyrir stuðninginn,“ segir Hilmar Már. Meðfylgjandi myndir tók Marinó Mortensen.

Litahlaup og samdans í GSNB - Skessuhorn