
Kynningarfundur á Breið um opinber störf án staðsetningar
Næskomandi miðvikudag, 2. október kl. 17:00, mun Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi og stjórnarmaður í Byggðastofnun kynna nýjar tillögur innviðaráðuneytis og Byggðastofnunar um styrki fyrir óstaðbundin störf á landsbyggðinni. Fundurinn verður haldinn á Breið, nýsköpunarsetri. Kynnt verður að ákveðið hefur verið að veita styrkjum allt að 150 milljónum kr. af byggðaáætlun, til að fjölga óstaðbundnum störfum á landsbyggðinni. Ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu eiga kost á að sækja um styrki til að ráða í óstaðbundin störf á þeirra vegum utan höfuðborgarsvæðisins, m.a. til að mæta kostnaði við aðstöðu fyrir starfsfólk. Málið var nýverið kynnt á ríkisstjórnarfundi og voru ráðherrar hvattir til að nýta tækifærið til að fjölga opinberum störfum á landsbyggðinni. „Þetta er virkilega áhugavert fyrir alla þá sem starfa hjá hinu opinbera á Akranesi og nágrenni og geta nú um áramót fengið styrk til að starfa t.d. á Breið,“ segir Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags.