
Búið er að brjóta upp ansi mikla steypu í götunni. Ljósm. vaks
Framkvæmdir á Hafnarbraut í fullum gangi
Í vikunni sem leið hófst endurgerð á bílastæðum og gangstéttum við Hafnarbraut á Akranesi á móts við Breið þróunarfélag. Bílastæðin voru orðin illa farin og gangstéttarnar nánast hættulegar. Að sögn Lárusar Ársælssonar umhverfisstjóra hjá Akraneskaupstað er áætlað að verkinu ljúki í byrjun nóvember en það fari eftir veðri og aðstæðum. Þetta verk er hluti af gatna- og stígaviðhaldi sem var boðið út í sumar þar sem fyrirtækið Fagurverk ehf. var með lægsta tilboðið.