Fréttir

true

Afmælisár í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði segir að 163 nemendur séu búnir að skrá sig til náms að þessu sinni. Af þeim eru 85 í fjarnámi, í Framhaldsdeild eru sjö nemendur og aðrir nemendur eru í staðnámi í Grundarfirði og þar af 31 nýnemi. „Eina breytingin á starfsmannahaldi var sú að einn starfsmaður lauk…Lesa meira

true

Kvikan er ný tegund bókasafns í skóla

Púlsinn tekinn hjá skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar Skessuhorn hafði samband við Braga Þór Svavarsson skólameistara Menntaskóla Borgarfjarðar. Hann segir að 16. ágúst hafi 203 nemendur verið skráðir í nám við skólann og  57 nýnemar væru væntanlegir. Um er að ræða metfjölda í skráningum og mikil gleði yfir þessari frábæru aðsókn. Um 30% nemenda eru skráðir í…Lesa meira

true

525 nemendur hefja nám í FVA í haust

Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, segir í samtali við Skessuhorn að skólinn sé nú að fara að taka á móti 525 nemendum á þessu skólaári; 427 nemendum í dagskóla og 98 nemendum í dreifnámi. „Við erum að fara að taka á móti 120 nýnemum sem koma beint úr 10. bekk en í…Lesa meira

true

Tók að sér matsveinsstarfið um borð 15 ára

Hrannar Kjartansson er 15 ára Ólafsvíkingur sem skellti sér á sjóinn í gær með feðgunum Magga Emma og Jóni Þór á línubátnum Rán SH. Hrannar er kominn af sjómannsfjölskyldu og því ekki ókunnur lífinu til sjós. Blíðuveður var og því örlaði ekki fyrir sjóveiki. Jón Þór sagði í samtali við fréttaritara að Hrannar hefði tekið…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn óhressir með jafntefli

Skallagrímur fór í gærkveldi og sótti stig gegn næst efsta liði 4. deildar karla í knattspyrnu, Ými. Leikið var í Kórnum í Kópavogi. Skallagrímur er í harðri botnbaráttu og er því hvert stig mikilvægt, nú þegar þrjár umferðir eru eftir hjá flestum liðum í deildinni. Leikmenn Skallagríms voru ennþá að reima á sig skóna þegar…Lesa meira

true

Stýrivextir óbreyttir í heilt ár

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%. Nú er ár síðan stýrivextir fóru á þennan slæma stað. „Verðbólga hefur aukist lítillega frá síðasta fundi nefndarinnar eftir að hafa hjaðnað fram eftir ári. Undirliggjandi verðbólga er enn mikil og verðhækkanir…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskipin komu í hrönnum

Það var mikið um að vera í vikunni sem leið í Grundarfjarðarhöfn. Skemmtiferðaskipin komu hvert af öðru og er þetta með stærri vikum á höfninni þetta sumarið. Costa Favolosa staldraði við sunnudaginn 18. ágúst og þar gengu rúmlega þrjú þúsund farþegar á land og fengu fínasta veður til að skoða sig um á Snæfellsnesi. Mánudaginn…Lesa meira

true

Gleðin við völd á afmælishátíð Kaupfélags Borgfirðinga – Myndasyrpa

Síðastliðinn laugardag var með pompi og prakt haldið upp á 120 ára afmæli Kaupfélags Borgfirðinga í versluninni við Egilsholt í Borgarnesi. Boðið var upp á ýmis tilboð í tilefni dagsins, nokkrir söluaðilar kynntu vörur sínar og farið var í leiki. Kaupfélagið bauð upp á ís, vöfflur og pylsur auk þess sem söluaðilar kynntu fleira ætilegt.…Lesa meira

true

Afhjúpun söguskiltis við Hótel Laxárbakka

Síðasta laugardagsmorgun var söguskilti afhjúpað við Hótel Laxárbakka og var hluti af dagskrá Hvalfjarðardaga. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri flutti ávarp og því næst afhjúpaði Hallfreður Vilhjálmsson, fyrrum sláturhússtjóri við sláturhús SS við Laxá, skiltið og sagði nokkur orð. Að athöfn lokinni var boðið upp á léttar veitingar á Hótel Laxárbakka sem áður hýsti rekstur sláturhússins.…Lesa meira