
Frá vinstri: Linda Björk, Lilja Guðrún Eyþórsdóttir ritari í stjórn SS, Hallfreður og Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri Heiðarskóla. Ljósm. hvalfjarðarsveit
Afhjúpun söguskiltis við Hótel Laxárbakka
Síðasta laugardagsmorgun var söguskilti afhjúpað við Hótel Laxárbakka og var hluti af dagskrá Hvalfjarðardaga. Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri flutti ávarp og því næst afhjúpaði Hallfreður Vilhjálmsson, fyrrum sláturhússtjóri við sláturhús SS við Laxá, skiltið og sagði nokkur orð. Að athöfn lokinni var boðið upp á léttar veitingar á Hótel Laxárbakka sem áður hýsti rekstur sláturhússins. Góð mæting var á viðburðinn og var fjöldi gesta um 50 manns.