Gleðin við völd á afmælishátíð Kaupfélags Borgfirðinga – Myndasyrpa

Síðastliðinn laugardag var með pompi og prakt haldið upp á 120 ára afmæli Kaupfélags Borgfirðinga í versluninni við Egilsholt í Borgarnesi. Boðið var upp á ýmis tilboð í tilefni dagsins, nokkrir söluaðilar kynntu vörur sínar og farið var í leiki. Kaupfélagið bauð upp á ís, vöfflur og pylsur auk þess sem söluaðilar kynntu fleira ætilegt. Þá var hægt að prófa axarkast, en keppni fór fram í reipitogi yngri og eldri og húsbændur kepptu í kerlingadrætti, en þá situr eiginkonan á vörubretti sem dregið er ákveðna vegalengd í kappi við klukkuna. Tónlistaratriði voru frá heimamönnunum Orra Sveini og Friðriki Ómari og kaupfélagsstjórinn flutti hátíðarræðu. Fergusonfélagið kom sterkt inn á afmælishátíðinni en félagsmenn mættu með eldri vélar og þá voru nokkrir fornbílar einnig á svæðinu.

Gleðin við völd á afmælishátíð Kaupfélags Borgfirðinga - Myndasyrpa - Skessuhorn