Fréttir

true

Yfir þrjú hundruð unglingar í Vinnuskólanum á Akranesi í sumar

Síðasti starfsdagur Vinnuskólans á Akranesi var síðasta miðvikudag. Alls sóttu 320 unglingar um vinnu í Vinnuskólanum í sumar. Þeir unnu á mismunandi tímabilum yfir sumarið en flestir voru í vinnu á fyrstu vikum skólans. Starfseminni var skipt niður á sjö hverfi eða starfsstöðvar, þar sem hver hópur sá um ákveðin verkefni í hverju hverfi. Vinnan…Lesa meira

true

Úthlutað úr Orkusjóði

Verkefni í Grundarfirði og á Grundartanga hljóta styrki Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur staðfest tillögu Orkusjóðs um að veita 1.342 milljónum króna í almenna styrki til orkuskipta á þessu ári. Þar af renna þrír styrkir á Vesturland, alls að upphæð um 100 milljónir króna. Hefur heildarupphæð styrkveitinga úr sjóðnum aldrei verið hærri.…Lesa meira

true

Skallagrímur með mikilvægan sigur

Skallagrímur sigraði Kríu frá Seltjarnarnesi í gærkvöldi, 3-1, í 4. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn var í járnum á fyrstu mínútum leiksins en frábært fótboltaveður var á Skallagrímsvelli í gær, blautur völlur og léttur vindur. Skallagrímsmenn náðu upp góðum takti þegar líða tók á fyrri hálfleikinn og á 35. mínútu spiluðu þeir sig í gegnum…Lesa meira

true

Ekki verður af sölu þrotabús Skagans 3X í heilu lagi

Nú er lokið viðræðum setts skiptastjóra í þrotabúi Skagans 3X á Akranesi við hóp fjárfesta sem gert hafði alls tvö tilboð í eignirnar. Helgi Jóhannesson skiptastjóri staðfestir í samtali við Skessuhorn að þeim viðræðum sé nú lokið og fullreynt með að salan gangi eftir. „Ástæðan er sú að ekki tókst að uppfylla skilyrði í tilboðunum…Lesa meira

true

Heimafólk á Vesturlandi sigursælt á Íslandsmótinu í pútti 60+

Íslandsmótið í pútti 60 ára og eldri var haldið á púttvellinum við gamla bæinn á Hamri við Borgarnes í gær. Fyrir fram var gert ráð fyrir úrkomusömu veðri og var slegið upp samkomutjaldi frá UMSB til að keppendur gætu leitað skjóls. Veður var engu að síður þokkalegt, skiptist á með skúrum og súldarveðri. Þátttaka var…Lesa meira

true

Forseti Íslands með ávarp á Dönskum dögum í Stykkishólmi

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, mun ávarpa hátíðargesti í tilefni af 30 ára afmæli Danskra daga sem fram fara í Stykkishólmi um helgina. Danskir dagar eru með eldri bæjarhátíðum hér á landi. Hátíðin var upphaflega skipulögð og hrundið af stað af atvinnulífinu þar í bæ, ekki síst í þeim tilgangi að lengja ferðatímabilið, sem á þeim…Lesa meira

true

Bændur bjóða heim og markaður á Grímsstöðum á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag opna bændur á Grímsstöðum í Reykholtsdal bú sitt fyrir gestum og gangandi. Þar er rekið Grímsstaðakjet – kjötvinnslubýli. Dagskráin er liður í Beint frá býli deginum sem nú er haldinn annað árið í röð í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV). Á sunnudaginn munu hvorki meira né minna en 18 heimavinnsluaðilar og…Lesa meira

true

Litrík skemmtun á Vinavelli í Hvalfjarðarsveit

Litahlaupið í Hvalfjarðarsveit var haldið í gær í Melahverfi. Þátttaka var góð og mikil gleði við völd. Þrátt fyrir smá rigningu, mættu þátttakendur glaðir til leiks og skemmtu sér vel. Áður en hlaupið hófst hélt Háski uppi stemningu á svæðinu með nokkrum lögum og sá einnig um að telja niður í upphaf hlaupsins. Hlaupið var…Lesa meira

true

Tap hjá Skagakonum gegn HK

HK og ÍA áttust við í 15. umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Kórnum í Kópavogi. Fyrir leik voru Skagakonur með 22 stig í 3.-5. sæti og með sigri gátu þær blandað sér af alvöru í toppbaráttuna á meðan heimakonur voru í 7. sæti með 18 stig. HK byrjaði af…Lesa meira