
N1 leigir Skútuna og dekkjaverkstæði til tveggja ára og undirbýr nýja þjónustumiðstöð
Bæjarráð Akraneskaupstaðar samþykkti í gær fyrir sitt leyti drög að samkomulagi við Festi hf. um leigu á húsnæði N1 á Akranesi. Samningurinn er til tveggja ára, eða til ágúst 2026, og snýst um leigu á húsnæði því sem Skútan við Þjóðbraut og Dekkjaverkstæði N1 við Dalbraut eru í. Um þriggja ára skeið hefur staðið til að N1 byggði nýja þjónustumiðstöð á lóð sem fyrirtækið fékk úthlutað við Hausthúsatorg haustið 2021, í makaskiptum við bæjarfélagið fyrir fyrrgreindar eignir við Dalbraut og Þjóðbraut, auk sjúkrabýlaskýlisins við Þjóðbraut.
Fyrr í sumar var hins vegar starfsfólki N1 á Akranesi sagt upp miðað við næstu áramót og jafnvel voru, samkvæmt heimildum Skessuhorns, fyrirætlanir um að N1 byggði eingöngu dælustöð fyrir eldsneyti á lóðinni við Hausthúsatorg og að önnu þjónusta yrði ekki í boði. Bæjarráð lagði í viðræðum sínum nú við N1 áherslu á að uppsagnir starfsfólks yrðu dregnar til baka og störfin tryggð á framkvæmdatímanum. Nú hefur því verið ákveðið að N1 haldi áfram með hönnun nýs þjónustuhúss við Hausthúsatorg og þar verði byggð upp verslun, eldsneytissala auk aðstöðu fyrir dekk- og smurþjónustu eins og lagt var upp með fyrir þremur árum. Gert er ráð fyrir að hinn tveggja ára leigutími N1 við Dalbraut og Þjóðbraut dugi til að fyrirtækið geti lokið við eða farið langt með uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar á Akranesi.
Í deiliskipulagi sem samþykkt var 2021 felst að skilgreindur var 1,6 ha landnotkunarreitur fyrir verslun og þjónustu N1, þ.e.a.s. afgreiðsla á eldsneyti eða veitingasölu, bílaþjónustu og upplýsingasvæði á lóðinni við Hausthúsatorg. Gert var ráð fyrir að færa þyrfti gamla þjóðveginn til norðurs og er einmitt unnið að því verki um þessar mundir. Þar verður reiðleið og göngustígar aðlagaðir að lóð N1. Einnig er gert ráð fyrir aðrein úr austri inn á lóðina af Akranesvegi.